Tuesday, September 9, 2014

Áfram halda ósköpin

Hæ aftur. Lífið gengur sinn vanagang, Bjössi hangir í skólanum eins og einhver nibbi og ég hangi heima. Við erum búin að fá danska kennitölu þannig nú hefst lífið! Nei kannski ekki alveg, en ég get allavega farið í Crossfit! Er búin að skrá mig á heimasíðuna hjá Crossfit Aalborg og búa til aðgang eins og þarf að gera áður en maður getur keypt kort og skráð sig í tíma. Ég stefni á að mæta fresh á morgun. Danirnir munu örugglega þurfa að halda á mér heim því ég hef ekki étið annað en hamborgara á Burger King og drukkið bjór síðan ég kom! En það verður bara góð æfing fyrir þá.

Við fengum loks kassana okkar senda frá Íslandi með öllu dótinu okkar. Ég var spenntust fyrir kaffivélinni og var mjög ánægð þegar hún kom í heilu lagi (annað en greyjið pannan sem er ekki lengur hringlaga í laginu og eldhúsvogin sem hefur beiglaðan on og off takka, en annað var nú í heilu lagi). Kassarnir komu víst í gær en póstkarlarnir snéru bara við og ákváðu að við ættum bara að sækja þá á pósthúsið. Jájá ekkert mál mine venner, ég stafla bara fjórum 20kg kössum á hausinn og labba með þá heim eins og blökkukonurnar, no problemo! En þetta reddaðist eins og flest gerir á endanum, eftir að hafa eytt aleigunni í IKEA um daginn keyptum við notaðan sófa af einum mjög svo ágætum dana hér í Álaborg og hann var svo góður að skutla honum til okkar og fara með Bjössa á pósthúsið og sækja kassana, þvílíkur öðlingur! Nú get ég farið að elda! Og hellt uppá kaffi, vá hvað ég er glöð!
Íbúðin er ekki enn orðin fín, okkur vantar enn nokkra hluti til að hún verði alveg reddí, til dæmis sjónvarp.. í hvaða átt eiga annars húsgögnin að snúa að? Bjössi er búin að liggja yfir dba.dk til að finna notuð sjónvörp, öll sem hann hefur fundið eru frá samsung og yfir 100.000... alveg merkilegt! En ég er með ólina þrönga, það þýðir ekkert að spreða svona þegar enginn er að vinna fyrir heimilinu. Það fer þó vonandi að breytast.
Næst á dagskrá er að sækja um vinnu, ætli ég endi ekki á því að vera ræstitæknir (er það ekki fallegt orð yfir skúringarkerlingu?) Ég var búin að sjá fyrir mér að ég myndi enda á því að vinna á Subway, með háskólagráðu í Sálfræði, en ég held að það sé bara mjög mikil bjartsýni þar sem ég kann varla neitt í dönsku. Kannski er bara nóg að geta sagt hita eða rista? Grænmeti? Sósu? Taka með eða borða hér? hm.. ég gæti svosem alveg stúderað þetta og sótt um... Bíðið bara, ég verð komin í græna búninginn með plasthanskana eftir nokkra daga... Varme eller skråstreg? Grönstager? Sovs? Tage ellert spise her? Google translate er alveg meðetta.


Í gær var brjálað veður. Þrumur og eldingar, mýgandi rigning og svo risa haglél! Ég var bara pínu hrædd.. en við Íslendingarnir óðum út í óveðrið til að kaupa kassa af bjór. Okei kannski ekki bara útaf því, við þurftum að taka út pening fyrir sófanum sem við ætluðum að kaupa, ákváðum bara að koma við í Rema 1000 (nýja uppáhalds búðin mín) og kaupa kassa af bjór því hann er svo ódýr. Jæja við óðum út og drukknuðum næstum á regndropunum. Römbluðum áfram götuna og hugsuðum að við myndum enda hjá einhverjum hraðbanka eing og kortið á google maps sýndi. Já það rættist, enduðum hjá meira að segja þremur hraðbönkum. Eftir að hafa tekið út pening hlupum við í Rema og keyptum kassa af bjór, þurftum svo bæði að halda á honum heim á milli okkar, eins og algjörir bjánar, þurftum að skipta um hlið þrisvar. Vorum orðin alveg holdvota en við komumst heim með bjór og hnetur til að mönnsa á. Alveg þess virði!

Hér erum við, mjög ánægð með heimkomuna.
Það besta var að við héldum að við værum að kaupa mjög ódýran og góðan bjór. Svo var víst ekki, þessi var frekar dýr en smakkaðist ágætlega, þegar ég skoðaði flöskuna sá ég að hann er 7,7%!! Það er bara betra, þá þarf maður bara að drekka minna.

Svo fórum við að setja saman öll húsgöngin, ég sýndi þvílíka takta og setti saman heilan stól! Hér eru myndir því til sönnunar....
Hér er ég að lesa á leiðbeiningarnar

Hér er ég að skrúfa sessuna á stólinn

Hér er svo ég með svakalega góða selfie með stykki sem ég skrúfaði saman...

Í gærkveldi fékk Bjössi að velja kvöldmatinn. Þá vorum við ekki komin með dótið okkar og aðeins eldfast mót sem við keyptum í IKEA (afhverju skrifa ég þetta alltaf með capslock?). Hann sá þetta flotta svínakjötsstykki sem þyrfti bara að elda í ofni í um hálftíma og við keyptum það. Þegar ég tók það úr umbúðunum leist mér nú ekki á blikuna, þetta leit frekar út eins og svínsfóstur heldur en eitthvað annað.. ég ákvað að taka mynd og sýna ykkur dýrðina
Já góðir hálsar, þetta lítur frekar út eins og nýrnasteinn heldur en svínakjöt. En þetta var ágætt, ég fékk mér þó bara einu sinni á diskinn svo ég fengi nú ekki svínaflensu.

Ef einhverjir hefðu áhuga þá er hér mynd af útsýninu úr íbúðinni
Já eins og þið sjáið þá erum við alveg við sjóinn, eða LIMfjörð eins og þetta heitir, hehö. Hér beint fyrir utan er svo strandblaksvöllur, vatnspóló völlur í sjónum og síðan sjóbrettavöllur ef hægt er að kalla þetta það. Það eru tvær brautir, önnur er bara venjuleg þar sem brettakappinn heldur í spotta og lætur draga sig fram og til baka, og síðan hin sem er með stökkpöllum og fleiru þar sem brettakappinn getur leikið listir sínar. Ég mæti með skíðin næst þegar ég get og sýni þessum dönum hvernig á að gera þetta!

Jæja ég hef ekkert meira að tuða um í kvöld. Endilega skiljið eftir komment hér fyrir neðan svo ég geti séð hverjir það eru sem nenna að lesa vitleysuna í mér :)

Maggý

6 comments:

  1. Gaman að geta fylgst með ykkur hér, á eftir að stalkera síðuna hérna og bíð spennt eftir nýju bloggi:P Gangi ykkur vel þarna úti elskurnar, er hrikalega ánægð með ykkur!:)

    ReplyDelete
  2. Æjæjæj vonandi fer allt að ganga frem over hjá ykkur, getur varla annað verið. En ég les sko! Var búin að skrifa heillanga kveðju til þín við síðasta blogg en svo datt hún út þegar ég þurfti að skrá mig eitthvað inn og vesen til að pósta henni. Ég gafst upp!

    Hei Rema 1000 er líka í Noregi, ég elskana!

    Hlakka til að koma í heimsókn til ykkar (sem verður vonandi sem fyrst), fara í Rema að kaupa bjór - drekka með ykkur bjór og fara í strandblak - jafnvel crossfit líka ;) aðallega drekka bjór samt. Og fá mér Subway hjá þér ;) haha

    ReplyDelete
  3. Takk Amanda, ég fylgist líka með þínu ;)
    Oh Aldís ég líka, þið verðið að koma í heimsókn! Vonandi verður íbúðin komin í gott stand þá og ég verð vonandi ekki að vinna á Subway! En ef svo þá færðu pottó frían bát :D
    Takk fyrir að fylgjast með og skilja eftir komment, gott að vita af ykkur ;)

    ReplyDelete
  4. Gaman að lesa skemmtilegt blogg og fá fréttir af ykkur :) bið að heilsa litla bró og njótiði lífsins þarna úti :)

    ReplyDelete
  5. Vei gaman að það sé blogg, gangi ykkur vel :)

    ReplyDelete
  6. Er líka að fylgjast með! Gaman að lesa og fá smá flashback frá því maður var sjálfur var nýr í baunalandinu :) En get sagt þér að maður getur bara fengið bátin ristaðan í dk, ekki hitaðan :O
    En annars ef það er eitthvað sem þið viljið spyrja um, ekki hika :)

    ReplyDelete