Hæ!
Ég ákvað að byrja með smá blogg svo að vinir og vandamenn geti fylgst með mér (okkur) hér í Álaborg og reynt að gleyma mér ekki.
Það hefur margt á daga okkar drifið og flest gengið á afturfótunum þó svo að eitthvað hafi nú gengið upp. Ferðalagið byrjaði með því að fluginu okkar var seinkað vel og lengi í Keflavík. Þegar við lentum í Kaupmannahöfn fengu þeir sem áttu tengiflug að fara fyrstir út og við hlupum að farangursfæribandinu (eða hvað þetta heitir) og biðum óðfluga eftir töskunum okkar. Þær komu auðvitað síðastar, eftir MJÖG langa bið. Þegar við höfðum loksins náð öllu hafurtaskinu af færibandinu þá var næst á dagskrá að tjékka okkur inn í innanlandsflugið til Álaborgar. Við fundum ekki innritunina og komumst að því að við þyrftum að fara á terminal 1 sem væri kílómeter í burtu. Við þurftum því að taka allt okkar hafurtask (7 töskur!) og bókstaflega hlaupa með þær heilan kílómeter í mýgandi rigningu (já úti) á terminal 1. Bjössi tók kerruna með 2 stórum töskum og 3 litlum og ég tók tvær stórar á hjólum sem vógu rúmlega 40kg samtals og hljóp af stað. Á leið minni hugsaði ég að öll mín ævi hafi undirbúið mig fyrir þessa stund. Allar Crossfit æfingarnar þar sem maður hefur þurft að hoppa, hlaupa, henda, sveifla og lyfta, allur svitinn, tárin og blóðið sem hefur undirbúið mig fyrir þessa einu stund. Það var minn drifkraftur, ég hljóp, ég svitnaði, ég grét smá. Bjössi tók framúr, hann hvarf úr augsýn. Á endanum komst ég inn í flugstöðina, holdvot af svita og rigningu. Við misstum af fluginu. Við vorum 7 mínútum of sein til að tjékka inn töskurnar. Mig langaði að gráta og æla á sama tíma úr reiði og vonbrigðum. Jæja það þýðir ekki, við pöntuðum nýtt flug og skiptum um föt (lyktuðum ekki vel eftir maraþonið). Innanlandsfluginu var síðan líka seinkað. Jæja þegar við lentum tjékkuðum við okkur inn á hótelinu sem var jafn stórt og kústskápur og var með kojum! Já mér leið eins og Harry Potter í herberginu sínu undir stiganum en allt í lagi þetta átti bara að vera ein nótt, mesta lagi tvær. Nei auðvitað ekki, allt var nú búið að ganga á afturfótunum og það var ekki að fara að breytast neitt næstu dagana. Eitthvað vesen var með leigusamninginn og fleira en allavega fengum við ekki íbúðina okkar fyrr en á fimmtudeginum, þá búin að vera á kústskápahótelherberginu frá sunnudegi til fimmtudags og ég einu sinni búin að þurfa að pakka í allar töskurnar 7 og koma þeim öllum niður í geymslu til einskis því við þurftum að vera aðra nótt.
En loks fengum við lykilinn að íbúðinni! En þar voru engin húsgögn eins og við vissum þannig að við drifum okkur í IKEA til að kaupa rúm svo við myndum nú ekki þurfa að sofa á gólfinu. Við keyptum rúm en þau gátu ekki sent það fyrr en daginn eftir þannig það leit út fyrir að við þyrftum að sofa á gólfinu eftir allt... en ég reddaði því og fékk lánaða dýnu hjá einni pige á skólagörðunum og við sváfum vært þá nótt. Eitt var þó mjög undarlegt og það var að það voru engin loftljós í íbúðinni nema inná baði. Við höfum því þurft að notast við kertaljós síðustu kvöld en það er bara kósý.
Í gær fórum við svo aftur í IKEA. Mættum 13:30 og vorum komin út 19:30! er þetta hægt? Jæja við allavega eyddum aleigunni en hey við keyptum loftljós! Svo í dag eyddum við deginum í að setja húsgögnin saman og bjössi gerði heiðarlega tilraun til að setja upp loftljósið í stofunni. Hann boraði og boraði, nágrannanum á efri hæðinni leist ekki á blikuna og bankaði í gólfið og svo kviknaði á brunakerfinu í íbúðinni... danirnir eru víst ekki hrifnir af svona brasi á sunnudögum. En Björn hélt áfram, hann ætlaði nú ekki að láta neina kartöflukjafta segja sér hvað hann mætt og mætti ekki gera þannig að hann setti upp ljósið og fór svo að tengja það, hann gleymdi að slá út rafmagninu og fékk svakalegt rafstuð, ég hló.
Við skruppum svo í búðina í dag til að eiga nú einhvern mat. Dótið okkar er ekki komið sem við fáum sent (aðallega skór sem ég á) og því erum við ekki með neina potta né pönnur. Útaf því var frekar erfitt að kaupa eitthvað í matinn sem mætti bara elda í ofni. En það hafðist, ég eldaði fræga pestó kjúllann með fetaosti. Hann var allt í lagi, kartöflurnar voru harðar. Málið með ofninn er nefnilega það að þetta er bakaraofn OG örbylgjuofn! Ég kann ekkert á hann... En það lærist vonandi.
Djöfull er samt erfitt að áfengi sé selt í verslunum og sjoppum. Manni langar ALLTAF í bjór! Sko ég hef samt séð þetta alveg fyrir mér. Okei ég kaupi bjór í matvöruverslun og hann er fáránlega ódýr, kassi af litlum bjór í gleri (24stk) er á 1200kr! Okei ég drekk hann á hverjum degi og mun örugglega safna smá bjórbumbu, en nei ég er í Danmörku og hér hjóla allir eða labba! Engar áhyggjur ég mun kaupa mér hjól bráðlega og hjóla burt alla bjórbumbuna! Þetta getur ekki klikkað. Má ekki alveg hjóla undir áhrifum?
Í augnablikinu erum við að bíða eftir að fá danska kennitölu og við ættum að fá hana vonandi á fimmtudag eða föstudag. Ég get ekki gert neitt þar til ég fæ hana, ekki farið á dönskunámskeið né í crossfit! Hvað er það?? jæja ég fer bara út að skokka í staðin, eða fæ mér bara bjór hann er svo ódýr muniði...
Jæja ég held ég hafi þetta ekki lengra í bili, hef ramblað nóg í kvöld um okkar ófarir. Vonandi snúast hlutirnir við á næstunni, þetta lítur allavega allt mjög vel út og ég held bara að hlutirnir geti bara ekki orðið neitt verri þannig þetta verður allt upp á við. Næstu dagar hjá mér (bjössi er bara í skólanum) munu fara í að koma okkur fyrir í litlu íbúðinni, reyna að kynnast einhverju fólki, reyna að sólbrenna ekki mikið meira (búið að vera mjög gott veður) og þegar ég hef fengið kennitölu mun ég fara á dönskunámskeið og snakke meget godt dansk og spise flögeskum!
Heyrðu í mér fljótlega því þú hefur bara 14 daga frá komu til landsins til að skrá þig inn í A-kassa og eiga rétt á atvinnuleysisbótum :)
ReplyDeleteKv. Ragna