Tuesday, September 9, 2014

Áfram halda ósköpin

Hæ aftur. Lífið gengur sinn vanagang, Bjössi hangir í skólanum eins og einhver nibbi og ég hangi heima. Við erum búin að fá danska kennitölu þannig nú hefst lífið! Nei kannski ekki alveg, en ég get allavega farið í Crossfit! Er búin að skrá mig á heimasíðuna hjá Crossfit Aalborg og búa til aðgang eins og þarf að gera áður en maður getur keypt kort og skráð sig í tíma. Ég stefni á að mæta fresh á morgun. Danirnir munu örugglega þurfa að halda á mér heim því ég hef ekki étið annað en hamborgara á Burger King og drukkið bjór síðan ég kom! En það verður bara góð æfing fyrir þá.

Við fengum loks kassana okkar senda frá Íslandi með öllu dótinu okkar. Ég var spenntust fyrir kaffivélinni og var mjög ánægð þegar hún kom í heilu lagi (annað en greyjið pannan sem er ekki lengur hringlaga í laginu og eldhúsvogin sem hefur beiglaðan on og off takka, en annað var nú í heilu lagi). Kassarnir komu víst í gær en póstkarlarnir snéru bara við og ákváðu að við ættum bara að sækja þá á pósthúsið. Jájá ekkert mál mine venner, ég stafla bara fjórum 20kg kössum á hausinn og labba með þá heim eins og blökkukonurnar, no problemo! En þetta reddaðist eins og flest gerir á endanum, eftir að hafa eytt aleigunni í IKEA um daginn keyptum við notaðan sófa af einum mjög svo ágætum dana hér í Álaborg og hann var svo góður að skutla honum til okkar og fara með Bjössa á pósthúsið og sækja kassana, þvílíkur öðlingur! Nú get ég farið að elda! Og hellt uppá kaffi, vá hvað ég er glöð!
Íbúðin er ekki enn orðin fín, okkur vantar enn nokkra hluti til að hún verði alveg reddí, til dæmis sjónvarp.. í hvaða átt eiga annars húsgögnin að snúa að? Bjössi er búin að liggja yfir dba.dk til að finna notuð sjónvörp, öll sem hann hefur fundið eru frá samsung og yfir 100.000... alveg merkilegt! En ég er með ólina þrönga, það þýðir ekkert að spreða svona þegar enginn er að vinna fyrir heimilinu. Það fer þó vonandi að breytast.
Næst á dagskrá er að sækja um vinnu, ætli ég endi ekki á því að vera ræstitæknir (er það ekki fallegt orð yfir skúringarkerlingu?) Ég var búin að sjá fyrir mér að ég myndi enda á því að vinna á Subway, með háskólagráðu í Sálfræði, en ég held að það sé bara mjög mikil bjartsýni þar sem ég kann varla neitt í dönsku. Kannski er bara nóg að geta sagt hita eða rista? Grænmeti? Sósu? Taka með eða borða hér? hm.. ég gæti svosem alveg stúderað þetta og sótt um... Bíðið bara, ég verð komin í græna búninginn með plasthanskana eftir nokkra daga... Varme eller skråstreg? Grönstager? Sovs? Tage ellert spise her? Google translate er alveg meðetta.


Í gær var brjálað veður. Þrumur og eldingar, mýgandi rigning og svo risa haglél! Ég var bara pínu hrædd.. en við Íslendingarnir óðum út í óveðrið til að kaupa kassa af bjór. Okei kannski ekki bara útaf því, við þurftum að taka út pening fyrir sófanum sem við ætluðum að kaupa, ákváðum bara að koma við í Rema 1000 (nýja uppáhalds búðin mín) og kaupa kassa af bjór því hann er svo ódýr. Jæja við óðum út og drukknuðum næstum á regndropunum. Römbluðum áfram götuna og hugsuðum að við myndum enda hjá einhverjum hraðbanka eing og kortið á google maps sýndi. Já það rættist, enduðum hjá meira að segja þremur hraðbönkum. Eftir að hafa tekið út pening hlupum við í Rema og keyptum kassa af bjór, þurftum svo bæði að halda á honum heim á milli okkar, eins og algjörir bjánar, þurftum að skipta um hlið þrisvar. Vorum orðin alveg holdvota en við komumst heim með bjór og hnetur til að mönnsa á. Alveg þess virði!

Hér erum við, mjög ánægð með heimkomuna.
Það besta var að við héldum að við værum að kaupa mjög ódýran og góðan bjór. Svo var víst ekki, þessi var frekar dýr en smakkaðist ágætlega, þegar ég skoðaði flöskuna sá ég að hann er 7,7%!! Það er bara betra, þá þarf maður bara að drekka minna.

Svo fórum við að setja saman öll húsgöngin, ég sýndi þvílíka takta og setti saman heilan stól! Hér eru myndir því til sönnunar....
Hér er ég að lesa á leiðbeiningarnar

Hér er ég að skrúfa sessuna á stólinn

Hér er svo ég með svakalega góða selfie með stykki sem ég skrúfaði saman...

Í gærkveldi fékk Bjössi að velja kvöldmatinn. Þá vorum við ekki komin með dótið okkar og aðeins eldfast mót sem við keyptum í IKEA (afhverju skrifa ég þetta alltaf með capslock?). Hann sá þetta flotta svínakjötsstykki sem þyrfti bara að elda í ofni í um hálftíma og við keyptum það. Þegar ég tók það úr umbúðunum leist mér nú ekki á blikuna, þetta leit frekar út eins og svínsfóstur heldur en eitthvað annað.. ég ákvað að taka mynd og sýna ykkur dýrðina
Já góðir hálsar, þetta lítur frekar út eins og nýrnasteinn heldur en svínakjöt. En þetta var ágætt, ég fékk mér þó bara einu sinni á diskinn svo ég fengi nú ekki svínaflensu.

Ef einhverjir hefðu áhuga þá er hér mynd af útsýninu úr íbúðinni
Já eins og þið sjáið þá erum við alveg við sjóinn, eða LIMfjörð eins og þetta heitir, hehö. Hér beint fyrir utan er svo strandblaksvöllur, vatnspóló völlur í sjónum og síðan sjóbrettavöllur ef hægt er að kalla þetta það. Það eru tvær brautir, önnur er bara venjuleg þar sem brettakappinn heldur í spotta og lætur draga sig fram og til baka, og síðan hin sem er með stökkpöllum og fleiru þar sem brettakappinn getur leikið listir sínar. Ég mæti með skíðin næst þegar ég get og sýni þessum dönum hvernig á að gera þetta!

Jæja ég hef ekkert meira að tuða um í kvöld. Endilega skiljið eftir komment hér fyrir neðan svo ég geti séð hverjir það eru sem nenna að lesa vitleysuna í mér :)

Maggý

Sunday, September 7, 2014

Lífið í Álaborg

Hæ!

Ég ákvað að byrja með smá blogg svo að vinir og vandamenn geti fylgst með mér (okkur) hér í Álaborg og reynt að gleyma mér ekki.

Það hefur margt á daga okkar drifið og flest gengið á afturfótunum þó svo að eitthvað hafi nú gengið upp. Ferðalagið byrjaði með því að fluginu okkar var seinkað vel og lengi í Keflavík. Þegar við lentum í Kaupmannahöfn fengu þeir sem áttu tengiflug að fara fyrstir út og við hlupum að farangursfæribandinu (eða hvað þetta heitir) og biðum óðfluga eftir töskunum okkar. Þær komu auðvitað síðastar, eftir MJÖG langa bið. Þegar við höfðum loksins náð öllu hafurtaskinu af færibandinu þá var næst á dagskrá að tjékka okkur inn í innanlandsflugið til Álaborgar. Við fundum ekki innritunina og komumst að því að við þyrftum að fara á terminal 1 sem væri kílómeter í burtu. Við þurftum því að taka allt okkar hafurtask (7 töskur!) og bókstaflega hlaupa með þær heilan kílómeter í mýgandi rigningu (já úti) á terminal 1. Bjössi tók kerruna með 2 stórum töskum og 3 litlum og ég tók tvær stórar á hjólum sem vógu rúmlega 40kg samtals og hljóp af stað. Á leið minni hugsaði ég að öll mín ævi hafi undirbúið mig fyrir þessa stund. Allar Crossfit æfingarnar þar sem maður hefur þurft að hoppa, hlaupa, henda, sveifla og lyfta, allur svitinn, tárin og blóðið sem hefur undirbúið mig fyrir þessa einu stund. Það var minn drifkraftur, ég hljóp, ég svitnaði, ég grét smá. Bjössi tók framúr, hann hvarf úr augsýn. Á endanum komst ég inn í flugstöðina, holdvot af svita og rigningu. Við misstum af fluginu. Við vorum 7 mínútum of sein til að tjékka inn töskurnar. Mig langaði að gráta og æla á sama tíma úr reiði og vonbrigðum. Jæja það þýðir ekki, við pöntuðum nýtt flug og skiptum um föt (lyktuðum ekki vel eftir maraþonið). Innanlandsfluginu var síðan líka seinkað. Jæja þegar við lentum tjékkuðum við okkur inn á hótelinu sem var jafn stórt og kústskápur og var með kojum! Já mér leið eins og Harry Potter í herberginu sínu undir stiganum en allt í lagi þetta átti bara að vera ein nótt, mesta lagi tvær. Nei auðvitað ekki, allt var nú búið að ganga á afturfótunum og það var ekki að fara að breytast neitt næstu dagana. Eitthvað vesen var með leigusamninginn og fleira en allavega fengum við ekki íbúðina okkar fyrr en á fimmtudeginum, þá búin að vera á kústskápahótelherberginu frá sunnudegi til fimmtudags og ég einu sinni búin að þurfa að pakka í allar töskurnar 7 og koma þeim öllum niður í geymslu til einskis því við þurftum að vera aðra nótt.

En loks fengum við lykilinn að íbúðinni! En þar voru engin húsgögn eins og við vissum þannig að við drifum okkur í IKEA til að kaupa rúm svo við myndum nú ekki þurfa að sofa á gólfinu. Við keyptum rúm en þau gátu ekki sent það fyrr en daginn eftir þannig það leit út fyrir að við þyrftum að sofa á gólfinu eftir allt... en ég reddaði því og fékk lánaða dýnu hjá einni pige á skólagörðunum og við sváfum vært þá nótt. Eitt var þó mjög undarlegt og það var að það voru engin loftljós í íbúðinni nema inná baði. Við höfum því þurft að notast við kertaljós síðustu kvöld en það er bara kósý.
Í gær fórum við svo aftur í IKEA. Mættum 13:30 og vorum komin út 19:30! er þetta hægt? Jæja við allavega eyddum aleigunni en hey við keyptum loftljós! Svo í dag eyddum við deginum í að setja húsgögnin saman og bjössi gerði heiðarlega tilraun til að setja upp loftljósið í stofunni. Hann boraði og boraði, nágrannanum á efri hæðinni leist ekki á blikuna og bankaði í gólfið og svo kviknaði á brunakerfinu í íbúðinni... danirnir eru víst ekki hrifnir af svona brasi á sunnudögum. En Björn hélt áfram, hann ætlaði nú ekki að láta neina kartöflukjafta segja sér hvað hann mætt og mætti ekki gera þannig að hann setti upp ljósið og fór svo að tengja það, hann gleymdi að slá út rafmagninu og fékk svakalegt rafstuð, ég hló.

Við skruppum svo í búðina í dag til að eiga nú einhvern mat. Dótið okkar er ekki komið sem við fáum sent (aðallega skór sem ég á) og því erum við ekki með neina potta né pönnur. Útaf því var frekar erfitt að kaupa eitthvað í matinn sem mætti bara elda í ofni. En það hafðist, ég eldaði fræga pestó kjúllann með fetaosti. Hann var allt í lagi, kartöflurnar voru harðar. Málið með ofninn er nefnilega það að þetta er bakaraofn OG örbylgjuofn! Ég kann ekkert á hann... En það lærist vonandi.
Djöfull er samt erfitt að áfengi sé selt í verslunum og sjoppum. Manni langar ALLTAF í bjór! Sko ég hef samt séð þetta alveg fyrir mér. Okei ég kaupi bjór í matvöruverslun og hann er fáránlega ódýr, kassi af litlum bjór í gleri (24stk) er á 1200kr! Okei ég drekk hann á hverjum degi og mun örugglega safna smá bjórbumbu, en nei ég er í Danmörku og hér hjóla allir eða labba! Engar áhyggjur ég mun kaupa mér hjól bráðlega og hjóla burt alla bjórbumbuna! Þetta getur ekki klikkað. Má ekki alveg hjóla undir áhrifum?

Í augnablikinu erum við að bíða eftir að fá danska kennitölu og við ættum að fá hana vonandi á fimmtudag eða föstudag. Ég get ekki gert neitt þar til ég fæ hana, ekki farið á dönskunámskeið né í crossfit! Hvað er það?? jæja ég fer bara út að skokka í staðin, eða fæ mér bara bjór hann er svo ódýr muniði...
Jæja ég held ég hafi þetta ekki lengra í bili, hef ramblað nóg í kvöld um okkar ófarir. Vonandi snúast hlutirnir við á næstunni, þetta lítur allavega allt mjög vel út og ég held bara að hlutirnir geti bara ekki orðið neitt verri þannig þetta verður allt upp á við. Næstu dagar hjá mér (bjössi er bara í skólanum) munu fara í að koma okkur fyrir í litlu íbúðinni, reyna að kynnast einhverju fólki, reyna að sólbrenna ekki mikið meira (búið að vera mjög gott veður) og þegar ég hef fengið kennitölu mun ég fara á dönskunámskeið og snakke meget godt dansk og spise flögeskum!