Tuesday, November 18, 2014

Hjól eru hættuleg

Ég veit ekki hvar ég á að byrja því það er svo langt síðan ég bloggaði síðast! Hef fengið nokkrar skammir í hattinn fyrir það, en þegar maður er farinn að vera letihaugur sem þarf ekki að gera neitt, þá nennir maður ekki að gera neitt þegar maður þarf þess. Fyrst skulum við ræða veðrið. Þegar allt var farið að snjóa í kaf á Íslandi, snjórinn í Reykjavík kominn í fréttirnar því snjómagnið á götunum þar voru 5cm, allir fastir og fólk komst ekki í vinnu, þá var bara sól og blíða hér, og um 15-20 stiga hiti. Maður er ekki alveg vanur þessu veðri. Eftir það hefur manni fundist aðeins vera farið að hausta en alls ekki kominn vetur. Síðustu dagar hafa reyndar verið svolítið kaldir og því kom dúnúlpan loksins að góðum notum.
Það sem ég sakna mest við haustið eru ábyggilega haustlitirnir á Akureyri. Hér er mikill gróður en tréin eru aðallega græn og gul sem er ekkert miðað við Akureyrina góðu.

Eftir um tveggja mánaða kyrrsetu drifum við Björn okkur í crossfit. Það væri hægt að lýsa fyrstu æfingunum ansi skrautlega. Það fyrsta sem mér datt í hug var að mér leið eins og ég hafi orðið fyrir valtara. Varð að klessu ojbara, og það þurfti að skafa mig upp með kíttisspaða og bera mig heim. Þvílíkt og annað eins! Á hverjum degi voru hlaup (sem ég hata) og wallball (sem ég hata), og þannig var það næstu tvær vikurnar! Svo var ég orðin nokkuð góð en þá fóru allir að hvetja mig áfram, og þegar fólk, sérstaklega sem maður þekkir ekki og skilur ekkert hvað það eru að segja, er að hvetja mann áfram þá vill maður ekki lippast niður eins og rækja og hætta heldur heldur áfram þangað til maður deyr. Okei ég dó kannski ekki, en ég kúgaðist! Já ég kúgaðist við að hlaupa, ég kúgaðist við að gera wallball og ég ældi næstum því við að gera tabata magaæfingar og þurfti að hætta. Hversu slæmt!


En ég var farin að sætta mig við að vera auminginn, sá sem kúgast á æfingu, nær varla andanum, síðust að hlaupa (ok ég labbaði oft í staðin) og alltaf síðust með æfinguna.
Þá kom að því, ég þurfti að hætta að æfa því ég var farin að finna svo til í hnénu. Það byrjaði samt þegar við vorum að flytja en verkurinn minnkaði en byrjaði svo aftur þegar ég fór að æfa aftur og varð svo slæmur að ég gat ekki beygt hnéð og ef ég steig í það þá réð ég ekkert við það og það fór bara í allar áttir. Eftir ánægjulega læknisferð og enn ánægjulegri sjúkraþjálfaraferð þá komst sjúkraþjálfarinn að því að ég er með.. bíðið ætla að lesa þetta af blaðinu því það er ekki séns að ég muni hvað þetta heitir... Quadriceps Tendinopathy. Já, sem þýðir semsagt að vefir í vöðvanum fyrir ofan hnéð eru skemmdir og það er smá vökvi í vöðvanum. Jibbí... en það er ágætt að vita hvað er að angra mann svo maður geti byrjað á fullu í endurbata. Ég fékk 3 æfingar sem ég á að gera og eiga að hjálpa við endurbata og svo bara kæla hnéð 3 á dag. Vonandi verð ég góð eftir einhverjar vikur. En ég þurfti að geyma crossfitið í einhvern tíma og keypti mér kort í ræktina, sem er glatað!
Ástæðan fyrir því að ég hef ekki verið að blogga er ábyggilega sú að það hefur ekki allt gengið að óskum hér úti. Þó svo að þetta sé búið að vera mjög gaman þá hefur þetta líka verið ótrúlega erfitt. Það að berjast við kerfið hérna er algjör martröð og svo virðist sem útlendingar séu ekki ofarlega á lista hjá atvinnurekendum því ég er búin að leita af vinnu síðan ég kom og ekkert fengið. Ég hef reyndar fengið vinnu sem barþjónn tvö kvöld í lok nóvember hjá fyrirtæki sem sér um viðburði og ég vona að ég standi mig vel þar og skilji hvað fólk biður um og svona svo ég geti haldið áfram þar, en þetta eru bara nokkrir viðburðir í mánuði sem maður þarf að sækja um og annað hvort fær eða fær þá ekki. En það er betra en ekkert. Þó svo að þetta hafi allt verið erfitt og allt hérna taki ótrúlega langan tíma þá líður okkur vel í Danmörku og erum búin að kynnast fullt af góðu fólki. Ég er loksins búin að fara í viðtal varðandi dönskuskólann og byrja vonandi fljótlega. Bjössi er byrjaður og fer tvisvar í viku í tvo tíma en þar sem ég er enn atvinnulaus ætla ég að fara á morgnanna frá 8-12 alla virka daga. Ég hlakka mjög til að byrja.

En nóg um þetta. Nú er maður að verða alvöru dani, komin á hjól og læti. Það er samt stórhættulegt að hjóla hérna í umferðinni. Maður hjólar á götunni þegar það eru ekki hjólastígar og fer eftir umferðarljósunum. Þið hefðuð átt að fylgjast með mér þegar ég fór mína fyrstu hjólaferð. Ég var eins og hauslaus hæna á hjólinu, vissi ekkert hvað ég átti að gera og hvert ég átti að fara til þess að komast þangað sem ég vildi. Það þýðir ekkert að hjóla bara á gangstéttinn og yfir götuna þegar maður vill eins og heima, nei vinurinn það þarf að fylgja umferðarreglunum! En ég lifði þetta af, í þetta skiptið! Nú hefur verið skítaveður alla daga, rigning og rok og þar af leiðandi pollar út um allt. Nú, ef það er pollur á götunni þá auðvitað hjóla ég ofan í hann, þekkið þið mig ekki neitt? Ég fór um daginn í viðtal í jobcenter og fór auðvitað á hjólinu. Á leið minni hjólaði ég í einn risa drullupoll og allt skvettist á hægri fótinn þannig skórinn og buxurnar voru rennandi, ég blótaði en hélt áfram. Þá lít ég á stýrið, var þá ekki könguló lafandi niður af stýrinu! Ég fékk taugaáfall og datt næstum af! En það þýddi ekki að stoppa í miðri umferðinni þannig ég náði að vippa henni burt með vettlingnum, bað til guðs að hún hafi ekki fests á honum. Svo kom ég að öðrum gatnamótum með ljósum, beið og svo af stað, beint í annan risapoll og ég þetta skiptið fór allt á hægri fótinn, skórinn og buxurnar drulluskítugar og ég rennandi blaut. Ég bölvaði aftur og leit á klukkuna, 5 mínútur í fundinn! Ég gaf í og brunaði í átt að jobcenter. Með vindinn í augunum og rigninuna í andlitinu, þakkaði guði fyrir að hafa ekki sett á mig maskara áður en ég fór út, það hefði endað illa. Jæja loksins komin á áfanga stað. Dreif mig upp á aðra hæð og beið eftir viðtalinu. Í miðju viðtalinu leit ég á skóna mína, þeir voru þornaðir en sjónin var hræðileg, drullan og skíturinn á skónum og alveg uppá hné! Skórnir orðnir ljósir af drullu (eru dökkbrúnir) og buxurnar líka (voru bláar). Guð minn almáttugur, konan heldur ábyggilega að ég sé heimilislaus. Jæja þeir eru þó undir borði og hún sér þá ekki. Þá er mér litið á bolinn minn, var kófsveitt eftir hjólatúrinn, búin að vera að þurrka svitan af enninu og efri vörinni allt viðtalið, tek ég eftir að ég er með svitabletti á maganum! Hversu mikil feitabolla þarf maður að vera til að fá svitabletti á magann?!?!? Guð hvað ég að gera? Búin að vera svona allt viðtalið þannig ég reyni að fela þetta með gollunni. Þvílíkt og annað eins. Jæja hún heldur þá bara það sem hún vill, viðtalið búið og gekk bara vel. Ég dríf mig út og bruna heim á hjólinu. Ákveð að koma við í búð því mjólkin var búin. Fer inn og fatta aftur hvað skórnir mínir eru skítugir. Ég dríf mig að kaupa það sem þarf og tek óvart bara einn poka. Jæja það dugir en hvernig á maður að hjóla heim með einn nýþungan poka öðru megin á stýrinu án þess að líta út fyrir að vera fullur? Guð minn almáttugur aftur, ég reyni að hjóla en næ engu jafnfægi, riða til hægri og vinstri alla leiðina heim, ber pokan upp, skipti um föt og steinrotast. Þvílíkt og annað eins. Mig langaði að gráta. Ég komst að því að líf mitt er kómedísk tradegía. Allt er svo hlægilega sorglegt. Afhverju er maður alltaf svona kjánalegur og mishepnaður? Guð hvað ég er fegin að ég þetta er borg og maður þekkir nánast engan.

Jæja þetta er nógu löng langloka í bili, byrjaði á þessu bloggi fyrir mörgum dögum þannig ég klára þetta bara núna og set svo annað inn sem fyrst.


Maggý :)

Friday, October 3, 2014

Já við erum enn á lífi!

Komiði sæl! Afsakið bloggleysið síðustu vikur, ég er búin að liggja í veikindum síðustu tvær vikur og Bjössi eitthvað líka. Þegar ég hef haldið að ég sé orðin góð þá hef ég bara versnað en ég er öll að koma til núna. Nú hugsa margir, tja fyrst hún lá bara heima og hafði ekkert að gera afhverju gat hún ekki bloggað? Jú málið var að ég hafði eiginlega engu að segja frá... og svo keyptum við okkur sjónvarp og erum með Netflix... þarf að segja meira?
Já ég leysti aðeins um ólina og gaf grænt ljós á sjónvarpskaup, keyptum notað Samsung sjónvarp af einhverjum fyr í köben og hann var svo góður að finna far fyrir það til okkar og það kom strax sama dag! Það er mega fínt. Svo lét hann Samsung spjaldtölvu fylgja með því hann notaði hana ekkert og hef ég tekið ástfóstri við hana og er komin með risa búgarð í farmville! Nei ég hef ekkert betra að gera.

Fyrir utan öflug viðskipti í Farmville þá er lítið annað að frétta af okkur. Erum komin með danska bankareikninga og ég með kort en Bjössi er að bíða eftir sínu. Þá getum við loks fengið okkur danskt símanúmer og farið að hringja heim og út um allt. Svo verðum við boðuð á fund vegna dönskunámskeiðs bráðum þannig vonandi styttist í að við getum byrjað á því. Ég sótti um kontanthjælp sem er peningahjálp eða nokkurs konar atvinnuleysisbætur. Það er held ég í kring um 100.000 á mánuði, en ég held samt að ef ég fæ þannig þá fæ ég ekki frítt dönskunám, þannig ég þarf aðeins að skoða hvort betra sé að sleppa þessum bótum og finna mér bara kvöld og helgarvinnu á bar í staðin til að fá námskeiðið frítt og eitthvað útborgað, ég þarf að skoða þetta. Síðan var ég bókuð í viðtal í jobcenter því ég var að sækja um kontanthjælp og vonandi fæ ég einhverja aðstoð við að finna vinnu. Þetta er allt að koma.
JÁ og ekki má gleyma aðal féttaefninu, PSL er komið á Starbucks!!! Já góðir hálsar, með haustinu kemur Halloween og því fylgir allt tengt graskerum og því er pumpkin spice latte mætt á svæðið. Þvílíkur unaður!
Ég get samt varla sagt að hér sé komið haust, enn mjög heitt úti og grænt gras. Sá meira að segja eldri mann í gallastuttbuxum í dag, ég er ekki að tala um svona fínar gallastuttbuxur sem eru í tísku hjá karlpeningnum sem ná niður á hné, neinei þetta voru galla hotpants! Hann púllaði það því miður ekki greyið, með sínar spóalappir. Ég kæri mig heldur ekkert um að sjá svona mikið af lærum á karlmönnum, þau eru ekki sexy. Nema þau séu mjög mössuð, þá sleppur það. En nóg um karlmannslæri...
Talandi um læri þá væri ég alveg til í íslenskt lambalæri núna, hér fæst ekkert nema svínakjöt! Það er svínakjöt í öllu, Bjössi greyjið fékk meira að segja purusteik í hamborgarabrauði í skólanum í dag! Hvað er það?!? Þessir Danir sko.
Í kvöld verður bara slappað af (eins og ég hafi ekki gert nóg af því síðustu 2 vikur) en svo annað kvöld er velkomstball hjá Íslendingafélaginu í Álaborg og planið er að drífa sig á það. Við fórum fyrir sirka 2 vikum á Haustgrill hjá félaginu og skemmtum okkur bara vel. Mér fannst mjög undarlegt að tala íslensku við alla, leið alltaf eins og ég væri að segja eitthvað vitlaust. En svona er þetta, maður er alveg orðinn ruglaður í hausnum á þessum tungumálum. Ég reyni þegar ég get að tala dönsku, en annars hefur maður bara verið að redda sér á enskunni sem er kannski ekki gott en eitthvað verður maður að gera. Svo tölum við Bjössi auðvitað saman á íslensku. Svo þegar maður hugsar þá er þetta komið allt í einn graut, ég hugsa á öllum þessum tungumálum og ég sver að þetta endaði í færeysku um daginn! Ég var einhvernvegin að reyna að hugsa á dönsku og hugsa hvernig ákveðnar setningar eru sagðar á dönsku og þegar ég vissi ekki hvernig það er sagt þá hugsaði ég bara um það hvernig ég held að það sé sagt, sem er engan vegin rétt, en það endaði á færeysku ég get svo svarið það! Myndi taka fyrir ykkur dæmi en ég bara man ekkert hvað ég var að hugsa.

Okei nóg um mínar hugsanir. Nei samt ekki, ég hef verið að hugsa um eitt. Út um alla borg eru svona Thai body massage stofur, er þetta í alvörunni nudd? eða er þetta þið vitið... eitthvað annað? Þetta er á hverju horni! Sem er kannski viðeigandi þegar ég hugsa um það, ef þetta er eitthvað annað. Bara smá pæling, ef einhver hefur reynslu af þessu má hann láta mig vita.

Ég er mikill pælari og pæli mjög mikið í öllu, sver að ég hefði átt að verða heimspekingur. Fyrir utan að heimspeki var leiðinlegasta fagið í menntaskóla. En kannski ég fari að setja inn hér á bloggið mínar vangaveltur og spekúleringar um heiminn svo að fólk geti kannski spekúlerað með mér og við komist að einhverjum niðurstöðum. Bara smá pæling. Bíðið endilega spennt. Svo hef ég verið að spá hvort ég ætti að deila með ykkur skemmtilegum uppskriftum sem mér þykja góðar, því ég elska mat og er loksins komin upp á lagið með að elda! Þegar við Bjössi byrjuðum að búa þá kunni ég bara að sjóða spagettí, því það þurfa auðvitað allir að kunna því það er besti matur í heimi! En greyjið Björn fékk fljótt leið á spagettíi með tómatsósu og osti þannig ég neyddist til að læra eitthvað nýtt. Ég leitaði ráða hjá móður minni og ömmu og amma gaf mér gott ráð og það var að prófa bara. Finna uppskrift í bók eða hvar sem er og prófa sig bara áfram. Ég sver þetta var frábært ráð og ég hef bara prófað hitt og þetta og komist að því að mér finnst mjög gaman að elda og er frábær kokkur! Þannig kannski deili ég með ykkur gómsætum uppskriftum og svoleiðis dótaríi.

Ég hef lítið meira merkilegt að segja, gæti þó alveg tuðað áfram í fimm metra langt blogg en þetta ætti að duga í bili. Ætla bara að láta nokkrar myndir inn ykkur til gleði og gamans.

Ég komst loksins að því hvað þessi mörk væru að gera þarna, þessir fjórir drengir hittast tvisvar í viku og fara á kanóa eða hvað þetta heitir og sigla um og kasta svo boltanum í markið. Þetta er æsispennandi íþrótt...

Sólsetrin hér eru mjög falleg

Og síðan er það Björn sem hlustar ekki á Maggý og fer í skólann án þess að setja á sig sólarvörn og skaðbrennur. Mér fannst þetta nokkuð fyndið.

Þar til næst!
Maggý





Tuesday, September 9, 2014

Áfram halda ósköpin

Hæ aftur. Lífið gengur sinn vanagang, Bjössi hangir í skólanum eins og einhver nibbi og ég hangi heima. Við erum búin að fá danska kennitölu þannig nú hefst lífið! Nei kannski ekki alveg, en ég get allavega farið í Crossfit! Er búin að skrá mig á heimasíðuna hjá Crossfit Aalborg og búa til aðgang eins og þarf að gera áður en maður getur keypt kort og skráð sig í tíma. Ég stefni á að mæta fresh á morgun. Danirnir munu örugglega þurfa að halda á mér heim því ég hef ekki étið annað en hamborgara á Burger King og drukkið bjór síðan ég kom! En það verður bara góð æfing fyrir þá.

Við fengum loks kassana okkar senda frá Íslandi með öllu dótinu okkar. Ég var spenntust fyrir kaffivélinni og var mjög ánægð þegar hún kom í heilu lagi (annað en greyjið pannan sem er ekki lengur hringlaga í laginu og eldhúsvogin sem hefur beiglaðan on og off takka, en annað var nú í heilu lagi). Kassarnir komu víst í gær en póstkarlarnir snéru bara við og ákváðu að við ættum bara að sækja þá á pósthúsið. Jájá ekkert mál mine venner, ég stafla bara fjórum 20kg kössum á hausinn og labba með þá heim eins og blökkukonurnar, no problemo! En þetta reddaðist eins og flest gerir á endanum, eftir að hafa eytt aleigunni í IKEA um daginn keyptum við notaðan sófa af einum mjög svo ágætum dana hér í Álaborg og hann var svo góður að skutla honum til okkar og fara með Bjössa á pósthúsið og sækja kassana, þvílíkur öðlingur! Nú get ég farið að elda! Og hellt uppá kaffi, vá hvað ég er glöð!
Íbúðin er ekki enn orðin fín, okkur vantar enn nokkra hluti til að hún verði alveg reddí, til dæmis sjónvarp.. í hvaða átt eiga annars húsgögnin að snúa að? Bjössi er búin að liggja yfir dba.dk til að finna notuð sjónvörp, öll sem hann hefur fundið eru frá samsung og yfir 100.000... alveg merkilegt! En ég er með ólina þrönga, það þýðir ekkert að spreða svona þegar enginn er að vinna fyrir heimilinu. Það fer þó vonandi að breytast.
Næst á dagskrá er að sækja um vinnu, ætli ég endi ekki á því að vera ræstitæknir (er það ekki fallegt orð yfir skúringarkerlingu?) Ég var búin að sjá fyrir mér að ég myndi enda á því að vinna á Subway, með háskólagráðu í Sálfræði, en ég held að það sé bara mjög mikil bjartsýni þar sem ég kann varla neitt í dönsku. Kannski er bara nóg að geta sagt hita eða rista? Grænmeti? Sósu? Taka með eða borða hér? hm.. ég gæti svosem alveg stúderað þetta og sótt um... Bíðið bara, ég verð komin í græna búninginn með plasthanskana eftir nokkra daga... Varme eller skråstreg? Grönstager? Sovs? Tage ellert spise her? Google translate er alveg meðetta.


Í gær var brjálað veður. Þrumur og eldingar, mýgandi rigning og svo risa haglél! Ég var bara pínu hrædd.. en við Íslendingarnir óðum út í óveðrið til að kaupa kassa af bjór. Okei kannski ekki bara útaf því, við þurftum að taka út pening fyrir sófanum sem við ætluðum að kaupa, ákváðum bara að koma við í Rema 1000 (nýja uppáhalds búðin mín) og kaupa kassa af bjór því hann er svo ódýr. Jæja við óðum út og drukknuðum næstum á regndropunum. Römbluðum áfram götuna og hugsuðum að við myndum enda hjá einhverjum hraðbanka eing og kortið á google maps sýndi. Já það rættist, enduðum hjá meira að segja þremur hraðbönkum. Eftir að hafa tekið út pening hlupum við í Rema og keyptum kassa af bjór, þurftum svo bæði að halda á honum heim á milli okkar, eins og algjörir bjánar, þurftum að skipta um hlið þrisvar. Vorum orðin alveg holdvota en við komumst heim með bjór og hnetur til að mönnsa á. Alveg þess virði!

Hér erum við, mjög ánægð með heimkomuna.
Það besta var að við héldum að við værum að kaupa mjög ódýran og góðan bjór. Svo var víst ekki, þessi var frekar dýr en smakkaðist ágætlega, þegar ég skoðaði flöskuna sá ég að hann er 7,7%!! Það er bara betra, þá þarf maður bara að drekka minna.

Svo fórum við að setja saman öll húsgöngin, ég sýndi þvílíka takta og setti saman heilan stól! Hér eru myndir því til sönnunar....
Hér er ég að lesa á leiðbeiningarnar

Hér er ég að skrúfa sessuna á stólinn

Hér er svo ég með svakalega góða selfie með stykki sem ég skrúfaði saman...

Í gærkveldi fékk Bjössi að velja kvöldmatinn. Þá vorum við ekki komin með dótið okkar og aðeins eldfast mót sem við keyptum í IKEA (afhverju skrifa ég þetta alltaf með capslock?). Hann sá þetta flotta svínakjötsstykki sem þyrfti bara að elda í ofni í um hálftíma og við keyptum það. Þegar ég tók það úr umbúðunum leist mér nú ekki á blikuna, þetta leit frekar út eins og svínsfóstur heldur en eitthvað annað.. ég ákvað að taka mynd og sýna ykkur dýrðina
Já góðir hálsar, þetta lítur frekar út eins og nýrnasteinn heldur en svínakjöt. En þetta var ágætt, ég fékk mér þó bara einu sinni á diskinn svo ég fengi nú ekki svínaflensu.

Ef einhverjir hefðu áhuga þá er hér mynd af útsýninu úr íbúðinni
Já eins og þið sjáið þá erum við alveg við sjóinn, eða LIMfjörð eins og þetta heitir, hehö. Hér beint fyrir utan er svo strandblaksvöllur, vatnspóló völlur í sjónum og síðan sjóbrettavöllur ef hægt er að kalla þetta það. Það eru tvær brautir, önnur er bara venjuleg þar sem brettakappinn heldur í spotta og lætur draga sig fram og til baka, og síðan hin sem er með stökkpöllum og fleiru þar sem brettakappinn getur leikið listir sínar. Ég mæti með skíðin næst þegar ég get og sýni þessum dönum hvernig á að gera þetta!

Jæja ég hef ekkert meira að tuða um í kvöld. Endilega skiljið eftir komment hér fyrir neðan svo ég geti séð hverjir það eru sem nenna að lesa vitleysuna í mér :)

Maggý

Sunday, September 7, 2014

Lífið í Álaborg

Hæ!

Ég ákvað að byrja með smá blogg svo að vinir og vandamenn geti fylgst með mér (okkur) hér í Álaborg og reynt að gleyma mér ekki.

Það hefur margt á daga okkar drifið og flest gengið á afturfótunum þó svo að eitthvað hafi nú gengið upp. Ferðalagið byrjaði með því að fluginu okkar var seinkað vel og lengi í Keflavík. Þegar við lentum í Kaupmannahöfn fengu þeir sem áttu tengiflug að fara fyrstir út og við hlupum að farangursfæribandinu (eða hvað þetta heitir) og biðum óðfluga eftir töskunum okkar. Þær komu auðvitað síðastar, eftir MJÖG langa bið. Þegar við höfðum loksins náð öllu hafurtaskinu af færibandinu þá var næst á dagskrá að tjékka okkur inn í innanlandsflugið til Álaborgar. Við fundum ekki innritunina og komumst að því að við þyrftum að fara á terminal 1 sem væri kílómeter í burtu. Við þurftum því að taka allt okkar hafurtask (7 töskur!) og bókstaflega hlaupa með þær heilan kílómeter í mýgandi rigningu (já úti) á terminal 1. Bjössi tók kerruna með 2 stórum töskum og 3 litlum og ég tók tvær stórar á hjólum sem vógu rúmlega 40kg samtals og hljóp af stað. Á leið minni hugsaði ég að öll mín ævi hafi undirbúið mig fyrir þessa stund. Allar Crossfit æfingarnar þar sem maður hefur þurft að hoppa, hlaupa, henda, sveifla og lyfta, allur svitinn, tárin og blóðið sem hefur undirbúið mig fyrir þessa einu stund. Það var minn drifkraftur, ég hljóp, ég svitnaði, ég grét smá. Bjössi tók framúr, hann hvarf úr augsýn. Á endanum komst ég inn í flugstöðina, holdvot af svita og rigningu. Við misstum af fluginu. Við vorum 7 mínútum of sein til að tjékka inn töskurnar. Mig langaði að gráta og æla á sama tíma úr reiði og vonbrigðum. Jæja það þýðir ekki, við pöntuðum nýtt flug og skiptum um föt (lyktuðum ekki vel eftir maraþonið). Innanlandsfluginu var síðan líka seinkað. Jæja þegar við lentum tjékkuðum við okkur inn á hótelinu sem var jafn stórt og kústskápur og var með kojum! Já mér leið eins og Harry Potter í herberginu sínu undir stiganum en allt í lagi þetta átti bara að vera ein nótt, mesta lagi tvær. Nei auðvitað ekki, allt var nú búið að ganga á afturfótunum og það var ekki að fara að breytast neitt næstu dagana. Eitthvað vesen var með leigusamninginn og fleira en allavega fengum við ekki íbúðina okkar fyrr en á fimmtudeginum, þá búin að vera á kústskápahótelherberginu frá sunnudegi til fimmtudags og ég einu sinni búin að þurfa að pakka í allar töskurnar 7 og koma þeim öllum niður í geymslu til einskis því við þurftum að vera aðra nótt.

En loks fengum við lykilinn að íbúðinni! En þar voru engin húsgögn eins og við vissum þannig að við drifum okkur í IKEA til að kaupa rúm svo við myndum nú ekki þurfa að sofa á gólfinu. Við keyptum rúm en þau gátu ekki sent það fyrr en daginn eftir þannig það leit út fyrir að við þyrftum að sofa á gólfinu eftir allt... en ég reddaði því og fékk lánaða dýnu hjá einni pige á skólagörðunum og við sváfum vært þá nótt. Eitt var þó mjög undarlegt og það var að það voru engin loftljós í íbúðinni nema inná baði. Við höfum því þurft að notast við kertaljós síðustu kvöld en það er bara kósý.
Í gær fórum við svo aftur í IKEA. Mættum 13:30 og vorum komin út 19:30! er þetta hægt? Jæja við allavega eyddum aleigunni en hey við keyptum loftljós! Svo í dag eyddum við deginum í að setja húsgögnin saman og bjössi gerði heiðarlega tilraun til að setja upp loftljósið í stofunni. Hann boraði og boraði, nágrannanum á efri hæðinni leist ekki á blikuna og bankaði í gólfið og svo kviknaði á brunakerfinu í íbúðinni... danirnir eru víst ekki hrifnir af svona brasi á sunnudögum. En Björn hélt áfram, hann ætlaði nú ekki að láta neina kartöflukjafta segja sér hvað hann mætt og mætti ekki gera þannig að hann setti upp ljósið og fór svo að tengja það, hann gleymdi að slá út rafmagninu og fékk svakalegt rafstuð, ég hló.

Við skruppum svo í búðina í dag til að eiga nú einhvern mat. Dótið okkar er ekki komið sem við fáum sent (aðallega skór sem ég á) og því erum við ekki með neina potta né pönnur. Útaf því var frekar erfitt að kaupa eitthvað í matinn sem mætti bara elda í ofni. En það hafðist, ég eldaði fræga pestó kjúllann með fetaosti. Hann var allt í lagi, kartöflurnar voru harðar. Málið með ofninn er nefnilega það að þetta er bakaraofn OG örbylgjuofn! Ég kann ekkert á hann... En það lærist vonandi.
Djöfull er samt erfitt að áfengi sé selt í verslunum og sjoppum. Manni langar ALLTAF í bjór! Sko ég hef samt séð þetta alveg fyrir mér. Okei ég kaupi bjór í matvöruverslun og hann er fáránlega ódýr, kassi af litlum bjór í gleri (24stk) er á 1200kr! Okei ég drekk hann á hverjum degi og mun örugglega safna smá bjórbumbu, en nei ég er í Danmörku og hér hjóla allir eða labba! Engar áhyggjur ég mun kaupa mér hjól bráðlega og hjóla burt alla bjórbumbuna! Þetta getur ekki klikkað. Má ekki alveg hjóla undir áhrifum?

Í augnablikinu erum við að bíða eftir að fá danska kennitölu og við ættum að fá hana vonandi á fimmtudag eða föstudag. Ég get ekki gert neitt þar til ég fæ hana, ekki farið á dönskunámskeið né í crossfit! Hvað er það?? jæja ég fer bara út að skokka í staðin, eða fæ mér bara bjór hann er svo ódýr muniði...
Jæja ég held ég hafi þetta ekki lengra í bili, hef ramblað nóg í kvöld um okkar ófarir. Vonandi snúast hlutirnir við á næstunni, þetta lítur allavega allt mjög vel út og ég held bara að hlutirnir geti bara ekki orðið neitt verri þannig þetta verður allt upp á við. Næstu dagar hjá mér (bjössi er bara í skólanum) munu fara í að koma okkur fyrir í litlu íbúðinni, reyna að kynnast einhverju fólki, reyna að sólbrenna ekki mikið meira (búið að vera mjög gott veður) og þegar ég hef fengið kennitölu mun ég fara á dönskunámskeið og snakke meget godt dansk og spise flögeskum!