Já ég leysti aðeins um ólina og gaf grænt ljós á sjónvarpskaup, keyptum notað Samsung sjónvarp af einhverjum fyr í köben og hann var svo góður að finna far fyrir það til okkar og það kom strax sama dag! Það er mega fínt. Svo lét hann Samsung spjaldtölvu fylgja með því hann notaði hana ekkert og hef ég tekið ástfóstri við hana og er komin með risa búgarð í farmville! Nei ég hef ekkert betra að gera.
Fyrir utan öflug viðskipti í Farmville þá er lítið annað að frétta af okkur. Erum komin með danska bankareikninga og ég með kort en Bjössi er að bíða eftir sínu. Þá getum við loks fengið okkur danskt símanúmer og farið að hringja heim og út um allt. Svo verðum við boðuð á fund vegna dönskunámskeiðs bráðum þannig vonandi styttist í að við getum byrjað á því. Ég sótti um kontanthjælp sem er peningahjálp eða nokkurs konar atvinnuleysisbætur. Það er held ég í kring um 100.000 á mánuði, en ég held samt að ef ég fæ þannig þá fæ ég ekki frítt dönskunám, þannig ég þarf aðeins að skoða hvort betra sé að sleppa þessum bótum og finna mér bara kvöld og helgarvinnu á bar í staðin til að fá námskeiðið frítt og eitthvað útborgað, ég þarf að skoða þetta. Síðan var ég bókuð í viðtal í jobcenter því ég var að sækja um kontanthjælp og vonandi fæ ég einhverja aðstoð við að finna vinnu. Þetta er allt að koma.
JÁ og ekki má gleyma aðal féttaefninu, PSL er komið á Starbucks!!! Já góðir hálsar, með haustinu kemur Halloween og því fylgir allt tengt graskerum og því er pumpkin spice latte mætt á svæðið. Þvílíkur unaður!
Ég get samt varla sagt að hér sé komið haust, enn mjög heitt úti og grænt gras. Sá meira að segja eldri mann í gallastuttbuxum í dag, ég er ekki að tala um svona fínar gallastuttbuxur sem eru í tísku hjá karlpeningnum sem ná niður á hné, neinei þetta voru galla hotpants! Hann púllaði það því miður ekki greyið, með sínar spóalappir. Ég kæri mig heldur ekkert um að sjá svona mikið af lærum á karlmönnum, þau eru ekki sexy. Nema þau séu mjög mössuð, þá sleppur það. En nóg um karlmannslæri...
Talandi um læri þá væri ég alveg til í íslenskt lambalæri núna, hér fæst ekkert nema svínakjöt! Það er svínakjöt í öllu, Bjössi greyjið fékk meira að segja purusteik í hamborgarabrauði í skólanum í dag! Hvað er það?!? Þessir Danir sko.
Í kvöld verður bara slappað af (eins og ég hafi ekki gert nóg af því síðustu 2 vikur) en svo annað kvöld er velkomstball hjá Íslendingafélaginu í Álaborg og planið er að drífa sig á það. Við fórum fyrir sirka 2 vikum á Haustgrill hjá félaginu og skemmtum okkur bara vel. Mér fannst mjög undarlegt að tala íslensku við alla, leið alltaf eins og ég væri að segja eitthvað vitlaust. En svona er þetta, maður er alveg orðinn ruglaður í hausnum á þessum tungumálum. Ég reyni þegar ég get að tala dönsku, en annars hefur maður bara verið að redda sér á enskunni sem er kannski ekki gott en eitthvað verður maður að gera. Svo tölum við Bjössi auðvitað saman á íslensku. Svo þegar maður hugsar þá er þetta komið allt í einn graut, ég hugsa á öllum þessum tungumálum og ég sver að þetta endaði í færeysku um daginn! Ég var einhvernvegin að reyna að hugsa á dönsku og hugsa hvernig ákveðnar setningar eru sagðar á dönsku og þegar ég vissi ekki hvernig það er sagt þá hugsaði ég bara um það hvernig ég held að það sé sagt, sem er engan vegin rétt, en það endaði á færeysku ég get svo svarið það! Myndi taka fyrir ykkur dæmi en ég bara man ekkert hvað ég var að hugsa.
Okei nóg um mínar hugsanir. Nei samt ekki, ég hef verið að hugsa um eitt. Út um alla borg eru svona Thai body massage stofur, er þetta í alvörunni nudd? eða er þetta þið vitið... eitthvað annað? Þetta er á hverju horni! Sem er kannski viðeigandi þegar ég hugsa um það, ef þetta er eitthvað annað. Bara smá pæling, ef einhver hefur reynslu af þessu má hann láta mig vita.
Ég er mikill pælari og pæli mjög mikið í öllu, sver að ég hefði átt að verða heimspekingur. Fyrir utan að heimspeki var leiðinlegasta fagið í menntaskóla. En kannski ég fari að setja inn hér á bloggið mínar vangaveltur og spekúleringar um heiminn svo að fólk geti kannski spekúlerað með mér og við komist að einhverjum niðurstöðum. Bara smá pæling. Bíðið endilega spennt. Svo hef ég verið að spá hvort ég ætti að deila með ykkur skemmtilegum uppskriftum sem mér þykja góðar, því ég elska mat og er loksins komin upp á lagið með að elda! Þegar við Bjössi byrjuðum að búa þá kunni ég bara að sjóða spagettí, því það þurfa auðvitað allir að kunna því það er besti matur í heimi! En greyjið Björn fékk fljótt leið á spagettíi með tómatsósu og osti þannig ég neyddist til að læra eitthvað nýtt. Ég leitaði ráða hjá móður minni og ömmu og amma gaf mér gott ráð og það var að prófa bara. Finna uppskrift í bók eða hvar sem er og prófa sig bara áfram. Ég sver þetta var frábært ráð og ég hef bara prófað hitt og þetta og komist að því að mér finnst mjög gaman að elda og er frábær kokkur! Þannig kannski deili ég með ykkur gómsætum uppskriftum og svoleiðis dótaríi.
Ég hef lítið meira merkilegt að segja, gæti þó alveg tuðað áfram í fimm metra langt blogg en þetta ætti að duga í bili. Ætla bara að láta nokkrar myndir inn ykkur til gleði og gamans.
Ég komst loksins að því hvað þessi mörk væru að gera þarna, þessir fjórir drengir hittast tvisvar í viku og fara á kanóa eða hvað þetta heitir og sigla um og kasta svo boltanum í markið. Þetta er æsispennandi íþrótt...
Sólsetrin hér eru mjög falleg
Og síðan er það Björn sem hlustar ekki á Maggý og fer í skólann án þess að setja á sig sólarvörn og skaðbrennur. Mér fannst þetta nokkuð fyndið.
Þar til næst!
Maggý
þú ert nú meiri snillingurinn Maggý mín, elska lesa þetta hahahaha
ReplyDeleteTakk fyrir það Fanney mín, gaman að vita að einhver les þessa vitleysu ;)
Delete